Gleði gleði gleði

02.10.2009 16:47:17 / Stína

Úff, sagði ekki flensa of snemma

Ég er orðin 99% viss um að þetta hafi verið svínaflensan ógurlega sem var að hrjá okkur seinni part ágústmánaðar, ein sem vinnur með mér fékk mjög svipað og hún smitaði heila fjölskyldu sem var greind með svínaflensuna :s  En þetta var rosalega skrítið og mér fannst ég ekki það veik, búið að gera svo mikið úr þessari hræðilegu veiki... en eins og bróðir minn orðaði svo smekklega... þá lifði ég svínaflensuna af  :lol:

Er búin að lifa ýmislegt annað af, heilt ár af kreppu og vonleysi í þjóðfélaginu, stundum hefur vonleysið hrjáð mann sjálfan en sem betur fer ekki nema smá stund í senn, ég hef ekki yfir neinu að kvarta, hef það gott og get borgað reikningana mína og keypt mér að éta.

Erum búin að vera mikið útí sveit síðustu helgar, vorum t.d. í kindastússi síðustu tvær helgar, er marin og blá eftir blessuðu litlu lömbin sem hafa manndrápshorn ;)
Lítur allt út fyrir að það verði ekki lagst í ferðalög þessa helgina, er búin að vera með kvef og hor og langar til að ná því úr mér.

Mér sýnist allir vera hættir að blogga, nema Lárus og kannski Tommi, fróðlegt að sjá hversu mikið þetta form hefur minnkað, einu sinni blogguðu allir sem maður þekkti.

Góðar stundir kæru vinir og hafið það gott um helgina :d


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2009 11:00:47 / Stína

Flensa... ekki flensa

Er búin að vera heima veik síðan á mánudaginn, ekkert voðaleg gaman en hugga mig við að þetta er líklega ekki svínaflensa heldur bara gamaldags íslenskt kvef.
Held ég sé bara alveg að hressast, enda ekki seinna vænna, afmælið mitt á morgun og þá verður bara gaman :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2009 19:17:49 / Stína

Sími

Keypti mér nýjan síma áðan... maður verður að halda kaupmættinum við ;)  Hrikalega flottur LG KU990 með snertiskjá.... núna er hann í hleðslu, get ekki beðið eftir að kveikja á honum :)
Erum búin að færa allt til Vodafone... þannig að ég er umkringd nýju rafeindadóti... og er komin með töluvert stærri nettengingu, þýt um Netið eins og vindurinn núna :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2009 20:36:17 / Stína

Twitter

Ég þarf ekki Twitter til að skrifa örblogg ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2009 21:35:01 / Stína

Verslunarmannahelgi

Það eru 10 ár síðan ég fór fyrst á þjóðhátíð... flaug með nokkrum góðum vinkonum í litlu röri til Eyja. Tjölduðum í Dalnum og skemmtum okkur vel í gulum regnstökkum sem keyptir voru í Kaupfélagi Borgfirðinga. Sumar voru í grænum eða rauðum en ég var alla vega í gulum og hafði það gott... minnir samt að það hafi lítið rignt 8)
Núna um helgina ætla ég að halda bara mína eigin hátíð í Borginni :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2009 13:58:34 / Stína

Júlí færsla

Frjókornaofnæmi er böööööööl

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2009 23:23:08 / Stína

Maí færsla - flensa og fleira

Vonandi er það satt sem er verið að tala um að svínaflensan verði ekki eins mikill faraldur og talað var um í upphafi, vona líka að dánartölur séu stórlega ýktar. Hugurinn er búinn að vera ansi oft í Mexikó síðustu daga, litla fjölskyldan hefur haldið sig innan dyra á meðan ástandið hefur verið svona skrítið.
Frídagar eru búnir að vera nokkuð margir í apríl, fyrsta heila vinnuvikan mín á Kirkjusandi byrjaði í dag, samt er ég búin að vinna þar í mánuð ;)  Heilsumánuður byrjaði í bankanum í dag og þessi fyrsta vika er tileinkuð hjólreiðum, mig langar rosalega mikið til að hjóla í vinnuna en sé mig ekki í anda hoppa í sturtu á Sandinum og mæta svo í vinnu. Finnst samt voða leiðinlegt að geta ekki verið með og safnað stigum fyrir deildina mína.... þarf að athuga hvort ég megi hjóla eftir vinnu :)
Það er mikið um að vera næstu helgi, grill/sumarbússtaða/kúreka partý á föstudeginum. Líka ball á Bifröst með Still-inn og Nýdönsk. Svo er reyndar líka Borgfirðingaball á Nasa, það væri ekki leiðinlegt að sjá Draumalandið aftur.... og af hverju er Úlrik ekki að spila á þessu balli??
Á laugardagskvöldinu er svo stórafmæli hjá Dagný, hlakka til að mæta þar og jafnvel kíkja á nýjasta skemmtistaðinn í Borgarnesi, B-57 :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2009 23:45:51 / Stína

Best að skrifa smá

Það eina sem maður nennir að skrifa á þessa dagana er Facebook, meira hvað maður getur hangið þar :$  Er búin að eiga rólegan laugardag heima, rosalega fínt að taka einn góðan frídag og gera lítið :)
Dró hjólið fram úr geymslunni í gær, teymdi það yfir á Sogveg og Jónas fixaði það fyrir mig, pumpaði í dekkin o.s.frv. Það er búið að vera í nokkur ár í geymslunni, ég er svo dugleg að hjóla eða þannig ;)  En tók nokkra æfingarúnta í gærkvöldi, verð vonandi duglegri.
Við Valdi fórum til Danmerkur 18.-24. mars, æðisleg ferð og fínt að komast aðeins í burtu. Hittum Möggu og Hauk í Köben. Fórum á tónleika með Fraz Ferdinard, þeir voru æði!! Röltum á Strikinu og kíktum í nokkrar búðir. Fórum til Árósa eina nótt, vorum hjá Karen og Hirti. Vorum svo bara að njóta þess að vera í fríi :d
Fyrsta apríl færði ég mig á nýjan vinnustað, er komin á Kirkjusand, vinn núna í innheimtudeildinni hjá Ísb Fjármögnun. Líkar rosalega vel þar og er hrikalega ánægð :d


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2009 17:03:28 / Stína

2008 búið

Já það er kominn 22. febrúar og árið er 2009, ég er bara nokkuð mikið eftir á - held ég þurfi bara að viðurkenna það og fara að segja skilið við 2008 :s

Árið í fyrra var afmælis árið mitt mikla, ekki það að ég ætti eitthvað stór afmæli, heldur er ég fædd þann 20.08. og fannst því 2008 mögnuð samsetning tölustafa :)
Fyrstu mánuðir ársins voru frekar tíðindalitlir, ég reyndi að baslast eitthvað í ræktinni, fór á stóra Sálartónleika og lífið var frekar venjulegt bara.
Það fór að draga til tíðinda í apríl þegar við Lárus ákváðum að skipuleggja Mexikóferð. Mér tókst að sannfæra mömmu, pabba og Arnþór um að við ættum að skella okkur og það gerðum við í lok júní, vorum 2 vikur og þetta var frábær ferð :d  Mikið er ég fegin að við skelltum okkur, hefðum líklega ekki tækifæri á að fara núna.
Restin af sumrinu leið hratt, Lárus og fjölskylda voru á landinu þar til í byrjun ágúst, svo var bara reynt að njóta birtunnar og góða veðursins, þegar það var ekki rigning 8)
Í lok sumarsins gerðust þau stórtíðindi að ég eignaðist kærasta, algjörlega frábært ;)
Fór til London í lok september með vinnufélögum mínum, frábær ferð, við rétt náum heim aftur fyrir hrun... og restin af árinu var ofsalega skrítið, en ég hélt a.m.k vinnunni og lífið hélt áfram sinn vanagang :)
Þann 8. október fæddist svo annar strákur í Mexikó, fyrst hét hann Bessi, svo Axel og ég veit ekki hvað hann heitir núna, kannski er hann bara kominn með tákn, eins og Prince :d

Er pínulítið dofin ennþá eftir öll lætin sem urðu við fall bankanna, þetta var algjör rússíbanareið og allur tilfinningaskalinn tekinn, furðulegustu mánuðir sem ég hef upplifað en þvílíkt sem maður lærir af þessu. Ég lít alla vega björtum augum á árið 2009... eða já það sem eftir er af því :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 09:48:50 / Stína

Gleðilegt ár allir

Jákvæða bloggið mitt datt aðeins niður seinni hluta desember, kafnaði í konfekti, vinnu og kjötáti. En þá þarf bara að hysja upp um sig og finna taktinn aftur á nýju ári  :)

Vona að allir hafi haft það gott yfir hátíðarnar, ég alla vega hafði það mjög gott, bara pínkulítið erfitt að koma sér af stað á nýju ári. Vinna fulla vinnuviku og svoleiðis ;)

Ætla að líta yfir árið 2008 fljótlega og setja niður hvað stóð upp úr.
Later :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2008 14:49:22 / Stína

Quote of the day

Whatever you give a woman, she will make greater.
If you give her sperm, she'll give you a baby.
If you give her a house, she'll give you a home.
If you give her groceries, she'll give you a meal.
If you give her a smile, she'll give you her heart.
She multiplies and enlarges what is given to her.
So, if you give her any crap, be ready to receive a ton of shit.

:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 21:59:35 / Stína

Sunnudagur

Búið að vera mjög rólegt hjá mér í dag og í gær, notaleg helgi.  Fór í vinnupartý á föstudagskvöldinu eftir vinaviku. Fékk þvílíka útrás með því að syngja í ABBA Singstar, tók Winner takes it all og söng svo hátt að allir hundar á Álftanesinu fóru að spangóla. Var örugglega töluvert betri en Meryl Streep :lol:

Kíktum aðeins á Thorvaldsen þar sem var fullt af fólki sem maður þekkti, mjög gaman að fara smá niður í bæ og dansa, langt síðan það hefur verið gert. Leigubílsstjórinn sem keyrði okkur heim var fæddur 1988!! Þá leið mér eins og ég væri gömul hehehe, nei annars - ég er kornung  :d
Týndi einum grænbláum vettling á þessu ferðalagi mínu, ég er snillingur í að týna vettlingum, húfum og treflum. Eeee já man það núna að eftir jólapartýið okkar í fyrra kom ég heim... búin að týna treflinum mínum  :s  Ég er þvílíkt góð í þessu  :haha:

Kominn fyrsti í aðventu og ég ætla að finna jólaskrautið á morgun, jóla jóla jóla jóla  ;)



» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 11:09:06 / Stína

Maður spyr sig...

Af hverju er ekki ennþá búið að gefa út frímerki með mynd af Davíð Oddssyni?

-Vegna þess að þá myndu Sjálfsstæðismenn ekki vita hvora hliðina þeir ættu að sleikja

:haha:  :haha:  :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 22:47:06 / Stína

CD

Eini geisladiskurinn sem mig langar í fyrir jól er safndiskurinn hans Palla :)  Þurfið ekki að gefa mér hann því ég vil fá hann áritaðan hjá Palla sjálfum og ég ætla að fara sjálf og fá áritunina  :haha:  Ætla að biðja hann að skrifa eitthvað ótrúlega hjartnæmt eins og: Stína, þú er ljós lífs míns og syngur alveg jafn vel og ég  :haha:
Fyrir jólin í fyrra fór ég og fékk áritunina: Stína, ég "hjarta" þig. Dóra fór líka og keypti diskinn til að gefa mér, með sömu áletrun. Hún varð frekar vonsvikin þegar hún sá að ég var búin að kaupa diskinn sjálf.... en þetta reddaðist, ég gaf lítilli frænku minni annað eintakið, hún heitir nefnilega sama fallega nafni og ég  flisskallogbroskallmeðtungunaútogeinnsemblikkarmeðhægraauganu!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 00:08:37 / Stína

Smash-hits

Fann út að það er búið að bæta nokkrum sjónvarpsstöðvum við hjá mér... alveg ókeypis :)
Þar á meðal er tónlistarstöðin SmashHits! sem er svo sannarlega að slá í gegn hjá mér, ef gamlir og nýjir poppslagarar létta ekki lundina þá veit ég ekki hvað  :haha:

Núna er til dæmis verið að telja niður í flokknum: Pure Pop Classics - Top 50
Náði fimm efstu lögunum

5. Dancing Queen / ABBA  - Ehh já, ef ABBA er ekki á svona lista þá er náttúrulega eitthvað að!
4. Hit me baby / Britney - Já líka, lagið sem allir sannir töffarar kunna að spila á gítar og syngja hástöfum með.... allan textann.
3. Reach / S Club 7 - Njaaaa, ekki hrifin af þessu lagi, þó grúppan standi fyrir sínu, var búin að gleyma því að þessi hljómsveit hefði verið til og hló mikið þegar þetta rifjaðist allt saman upp. Finnst Don´t Stop Movin samt skemmtilegra lag, meiri gleði í því og hægt að dilla sér við það
2. Wannabe / Spice girls
- Ójá ójá ójá, þarf ekki að hafa fleiri orð um það... girlpower!!
1. Can´t get you out of my head / Kylie M - Mmmm já kannski bara einum of töff lag og söngkona til að vera á þessum lista, en já Kylie alltaf flott.

Hahahahaha núna eru New Kids on the Block með The Right stuff, þvílík nostalgía :d

Hvet ykkur til að kíkja á S Club 7, hækka duglega, standa upp og dansa eins og vindurinn ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 88 dögum
Jólin
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 52 dögum
Indland!
Heimsóknir
Í dag:  30  Alls: 69684
Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010
Myndasöfn
Leitarbox