Ég er búin að vera heima alla vikuna, já já haldiði að mér hafi
ekki tekist að togna hægra megin við rifbeinin. Já og hvernig fór
ég að því? Ég skal segja ykkur það.... ég hóstaði svo mikið þegar
ég var með flensuna um daginn að ég tognaði.... geri aðrir
betur!!
Er loksins eitthvað að lagast, annars emjaði ég þegar ég gerði
eftirfarandi: Andaði djúpt, hnerraði, hóstaði, geispaði osfrv.
Vonandi fer ég nú að ná heilsu, mamma ætlar líklega að koma til mín
um helgina, vííí 
Á eftir að skila 4 verkefnum á næstu dögum, einu í kvöld, 2 á
mánudaginn og svo síðasta þann 10. des. Púffffff, ég er búin að
vera veik alveg á versta tíma en.... þetta fer nú að
klárast 