Gleði gleði gleði

25.10.2006 00:06:01 / Stína

Takk allir

fyrir að skrifa komment hjá mér, nú veit ég að einhver nennir að lesa þetta og ég ætla að blogga meira. Var að koma úr mat hjá Þórdísi og Gulla, takk fyrir mig! Svaka fínt að fá svona mat án þess að hafa fyrir því, ég held að það sé kominn kóngulóarvefur á eldavélina mína og það bergmálar í ísskápnum ;)  Nenni bara alls ekki að elda á kvöldin, hvað er líka hægt að elda fyrir eina manneskju, er komin með leið á því sem ég hef eldað hingað til, eru einhverjar góðar uppskriftir til... eitthvað sem maður þarf þá ekki að borða 3 næstu daga á eftir.

Hvað er málið með þessa bandarísku þætti eins og Insider og Dateline? Þeir líta út eins og vera frá árinu 1985, hrikalega gamaldags look á þeim og fólkið í þeim lítur út og talar eins og fávitar. 

Jebb það er erfitt að vera fullkominn :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 18:29:43 / Stína

Poppstjörnur og annað fólk

Já góðan daginn, ef það er ekki tilefni til að blogga núna þá veit ég ekki hvað. Það er allt gott að frétta hjá mér, sumarið var algjör snilld, það náði hámarki með tónleikum poppstjörnunnar Maddonnu í Danmörku og vá hvað hún er svakalega flott!! Það voru reyndar doldið margir eða 85 þúsund manns og ég skil þá sem voru aftast að vera ekki ánægðir með hljóð og slíkt en... við brjáluðu íslendingarnir tróðum okkur framarlega og sjáum sko ekki eftir því.. helló helló helló and welcome to the show (hver man ekki eftir þessu úr ensku??) Hitti svo rokkstjörnu fyrir rúmlega 2 vikum, fór í óvissuferð með vinnunni, sjóstöng og læti, sem endaði á Nordica í geeeððveiku nuddi. Þegar ég var að klæða mig í djammgallann kemur ekki bara DILANA vinkona mín askvaðandi inn í klefann og segir HI!! Ég datt næstum því um sokkabuxurnar sem ég var að troða mér í og gat stunið upp einu HÆI. Svo blaðraði hún og blaðraði við mig og ég var bara, aha, óje, ok, kúl og thats næs og alveg með hláturinn inní mér, shitt hvað þetta var fyndið, svo vorum við bara að striplast þarna saman, hún talaði nú líka við vinnufélaga mína, þ.e. stelpurnar (vorum í kvennaklefanum skiluru) en laaaaaaaangmest við MIG :) Svo fórum við á ball með Sálinni á Nasa og ég sagði öllum sem heyra vildu hvað við Dilana værum góðar vinkonur. Fór svo á útgáfutónleika hjá einni poppstjörnu í viðbót á laugardaginn, Toggi var að gefa út disk sem heitir Puppy, svakalega góður og tékkið á honum http://toggimusic.com/, verðið ekki svikin af því. Núna er ég að reyna að skrifa BS-ritgerðina mína og gengur bara ágætlega... þe. þegar ég er ekki að hitta poppstjörnur, hver ætli það verði næst??? Ef þið kommentið ekki á þetta eins og vindurinn þá veit ég hreinlega ekki hvað ég geri :) Stína out

» 9 hafa sagt sína skoðun


Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 76 dögum
Jólin
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 40 dögum
Indland!
Heimsóknir
Í dag:  23  Alls: 69216
Klukkan
Dagsetning
10. mars 2010
Myndasöfn
Leitarbox