Gleði gleði gleði

05.06.2006 12:23:08 / Stína

Kominn júní

Hvítasunnuhelgin er búin að vera mjög fín, fór í matarboð til Elísu á föstudagskvöldinu, þar var mikið fjör og mikið spjallað. Við Bjargey löbbuðum svo heim í frábæru veðri, mjög þægilegt að vinkonurnar búa flestar á sama punktinum ;)  Fór í bæinn á laugardeginum, hitti Dagný, Önnu og Finndísi, héngum bara á Austuvelli með öllum hinum í sólinni. Á sunnudeginum var fermingin þeirra Guðmundar og Guðbjargar, fékk far með Oddi og Ingu, át á mig gat af brauðtertum og kökum og gat eiginlega mig ekki hreyft í gærkvöldi. Horfði bara á sjónvarpið og fór snemma að sofa, Sideways var í sjónvarpinu, minnti að einhvers staðar hefði ég heyrt að hún væri góð og horfði því á hana af athygli.... en fannst hún bara lala, ekkert spes. Var eiginlega alveg að sofna yfir henni... hmmm gæti líka verið óverdós af sykri sem hafði þessi áhrif á mig :)

Nú er Lárus að koma heim á miðvikudaginn, er að reyna að taka eitthvað til og gera fínt en er að drepast úr leti.... já og er ennþá að drepast úr kvefi þannig að ég hef nóg af afsökunum  :lol:  Auglýsi hér með eftir einhverjum sem getur flutt fyrir mig rúm úr Hlíðunum, Dóra ætlar að vera svo góð að lána mér eitt stykki rúm í sumar. Get kannski bara sett það á toppinn á Yaris og krúsað með það heim :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun


Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 76 dögum
Jólin
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 40 dögum
Indland!
Heimsóknir
Í dag:  23  Alls: 69216
Klukkan
Dagsetning
10. mars 2010
Myndasöfn
Leitarbox