Fór 4 sinnum í ræktina í síðustu viku, er líka með massastrengi í dag, get varla hreyft mig, hef sparkað eitthvað vitlaust út í loftið, líður eins og fóturinn sé að detta af, en ég lifi

Sá Stóra planið í síðustu viku, hafði mjög gaman að henni, Pétur Jóhann er náttúrulega frábær og tónlistin er mjög skemmtileg. Spes söguþráður um einhvers konar mafíósagengi á Íslandi, sem gengur samt nokkurn veginn alveg upp. Hver man ekki eftir "Ole på dansk" ????

Síðasti þátturinn af Dexter í kvöld, já það verður líklega hápunktur dagsins hjá mér

Pose with pain.... hahaha Tyra klikkar ekki!