Það eina sem maður nennir að skrifa á þessa dagana er Facebook, meira hvað maður getur hangið þar

Er búin að eiga rólegan laugardag heima, rosalega fínt að taka einn góðan frídag og gera lítið

Dró hjólið fram úr geymslunni í gær, teymdi það yfir á Sogveg og Jónas fixaði það fyrir mig, pumpaði í dekkin o.s.frv. Það er búið að vera í nokkur ár í geymslunni, ég er svo dugleg að hjóla eða þannig

En tók nokkra æfingarúnta í gærkvöldi, verð vonandi duglegri.
Við Valdi fórum til Danmerkur 18.-24. mars, æðisleg ferð og fínt að komast aðeins í burtu. Hittum Möggu og Hauk í Köben. Fórum á tónleika með Fraz Ferdinard, þeir voru æði!! Röltum á Strikinu og kíktum í nokkrar búðir. Fórum til Árósa eina nótt, vorum hjá Karen og Hirti. Vorum svo bara að njóta þess að vera í fríi

Fyrsta apríl færði ég mig á nýjan vinnustað, er komin á Kirkjusand, vinn núna í innheimtudeildinni hjá Ísb Fjármögnun. Líkar rosalega vel þar og er hrikalega ánægð