Hef ekki haft mikinn tíma til að blogga en það gengur allt vel og það er búið að vera svaka gaman í Mexikó

Ætla að punkta niður helstu atriði ferðasögunnar áður en ég gleymi því, bæti svo bara inn í þessa bloggfærslu þegar ég man hvað er búið að gerast fleira. Tímasetningarnar eru kannski smá ruglaðar, ég er alltaf að ruglast á þessum tímamismun, ég er 5 tímum á eftir Íslandi.
Núna erum við að horfa á EM í fótbolta, fyndið að horfa á EM í Ameríku.
Fös 20/6 - Lagt af stað úr sveitinni kl. 4 um nóttina, held ég hafi náð þriggja tíma svefni, var frekar steikt. Flugum með Icelandair til New York, vorum komin þangað upp úr hádegi, fann hvar ætti að tékka okkur inn hjá Mexicana á JFK. Fórum í næstu vél seinni partinn, sofnaði áður en hún tók á loft, og vorum komin til Mexico City um kvöldið. Lárus, Anel og Ari náðu í okkur á völlinn, fórum heim til þeirra á einum Clio og einum Taxa.
Lau 21/6 - Fórum í World Trade Center þar sem Anel er með tannlæknastofu, fékk tannhreinsun og nýja fyllingu í staðinn fyrir eina ljóta silfurfyllingu. Mamma og Arnþór fengu líka hreinsun og fleira. Borðuðum á Chilis, rétt hjá WTC.
Sun 22/6 - Borðum hádegismat úti, bændur sem komu með lambakjöt og elduðu úti. Fórum og skoðuðum kastala og dýragarð. Byrjaði að hellirigna þegar við fórum í bílana, rétt sluppum.
Mán 23/6 - Móðursystir Anelar kom og klippti alla, þvílíkur munur að vera nýklipptur með vel hreinsaðar tennur

Við Lárus fórum og keyptum morgunmat af manni á götunni, enginn fékk í magann

Fórum í túristarútu og rúntuðum í nokkra klukkutíma um borgina. Fengum okkur svo að borða á Italianni´s. Við Mamma fórum með Anel á tannlæknastofuna hennar þar sem hún kláraði að gera tennurnar fínar, sáum nakið fólk mótmæla á leiðinni þangað, frekar fyndið.
Þri 24/6 - Lögðum af stað til Cancún, keyrðum til Santa Fe þar sem við tókum flugrútu í klukkutíma og svo flug í 2 tíma og svo lítil rúta á hótelið í 30 mín. Hótelið okkar var mjög flott, reyndar svo flott að það var ekki hótel, heldur klúbbur, Club International. Komum okkur fyrir, kíktum á ströndina, busluðum í sjónum og tókum svo strætó í bæinn um kvöldið.
Mið 25/6 - Eini sólbaðsdagurinn, redduðum okkur bílaleigubíl um kvöldið.
Fim 26/6 - Helliringing og þrumur. Brunuðum á bílaleigubílnum í rúma 2 tíma til að skoða píramída, skoðuðum líka risastóran helli þar sem hægt var að synda í vatni á botninum. Fórum aftur um kvöldið að píramídunum og horfðum á ljósasýningu.
Fös 27/6 - Sigldum út í eyju sem heitir Isla Mujeres, leigðum tvo golfbíla og krúsuðum um alla eyjuna.
Lau 28/6 - Tékkuðum okkur út af klúbbnum um hádegi, fórum í bæinn og fengum okkur Hägen-Daas ís. Skoðuðum sædýrasafn, Anel og Arnþór klöppuðu skötu og hákarli

Flugum aftur til Mex City um kvöldið
Sun 29/6 - Rólegheit í borginni, fór aðeins út áðan og skoða hvað væri í boði í fatabúðunum, sá ekkert merkilegt, kem líkalega fatalaus heim.
Já þetta er svona það helsta, bæti meiru kjöti á beinin síðar. Förum til New York á þriðjudaginn og komum heim á föstudaginn.
Spánverjar urðu Evrópameistarar á meðan ég skrifaði þetta
Adios